Eins og flestir þekkja þá hefur aðgangur að bifreiðum breyst mikið á síðustu árum.
Nú eru flestar gerðir nýrra bifreiða með fjarstýrðum lásum eða nándarlesurum (bifreið opnast þegar handhafi aðgangslykils nálgast bifreiðina).
Sama þróun hefur verið síðustu ár í nokkrum löndum Asíu hvað varðar heimili (fjölbýlishús og einbýlishús).
Í dag eru t.d. yfirgnæfandi meirihluti útihurða í íbúðir í S. Kóreu með takkalás, kortalesara, fingrafaralás eða fjarstýringu.
Einnig er mikill fjöldi íbúða í t.d. Hong Kong, Shanghai, Singapore, Dubai ofl með aðgangskerfum í útihurðum.
Þróunin virðist vera sú að hefðbundnir lyklar eiga undir högg að sækja.
Yale Doorman er útfærsla sem er sérstaklega hönnuð fyrir Norðurlönd. Við fáum Yale Doorman til sölu fljótlega.
Erum einnig með aðrar útfærslur á lager fyrir heimili fólks t.d. Yale Gateman læsingu fyrir hurðir með úrtaki fyrir Þýskar læsingar, Yale Gateman smekklás útfærslu, Polymath takkalása og fingrafaralása fyrir rafhlöðu, móttakara fyrir farsíma (Bluetooth, þarf rafmagnsslúttjárn), fingrafaralæsingar (þarf rafmagnsslúttjárn).
Þú finnur örugglega lausnina hjá okkur.
Sjá nánar PDF
Yale Doorman á Sænsku