Vélar og Verkfæri
Vélar & Verkfæri ehf er heildverslun sem stofnuð var árið 1942. Helstu vörur sem fyrirtækið dreifir og selur eru t.d. læsingar, handföng og almennar járnvörur fyrir glugga og hurðir, aðgangskerfi, sjálfvirkur opnunarbúnaður fyrir hurðir og glugga, handverkfæri, rafmagnsverkfæri o.s.frv.
Saga fyrirtækisins:
Verslunarrekstur, umboðs- og heildverslun var ekki sá starfsvettfangur sem Guðmundur Jónsson valdi sér sem ungur maður. Hann nam trésmíði og starfaði sem smiður í nokkur ár, meðal annars í Noregi.
Í kjölfar vinnuslyss, en Guðmundur missti framan af þremur fingrum, ákvað hann að reyna fyrir sér á nýjum vettfangi. Hann nýtti sér þau sambönd sem hann hafði komið sér upp í Noregi, auk þess sem hann ferðaðist töluvert um Norðurlönd, Þýskaland og Bretland til að afla sér umboða og viðskiptasambanda.
Árið 1919 markaði tímamót hjá Guðmundi en þá hóf hann rekstur umboðs- og heildverslunar og stofnsetti Verslunina Brynju við Laugaveginn.
Guðmundur seldi verslunina árið 1937 og beindi óskiptum kröftum sínum að umboðs- og heildsölu.
Guðmundur Jónsson, sonur hans og tengdasynir stofnuðu hlutafélagið Vélar & Verkfæri árið 1942.
Upphaflegt markmið fyrirtækisins var verksmiðjurekstur af einhverju tagi. Starfsemin var lítil sem engin fyrstu árin, einkanlega vegna ófriðar í heiminum. Ekkert varð úr verksmiðjurekstri en starfsemin varð sívaxandi á sviði umboðs- og heildverslunar.
Guðmundur Jónsson rak fyrirtækið allt til dauðadags, en þá tók Guðmundur S. Guðmundsson, sonur hans við því. Núverandi framkvæmdastjóri tók síðan við fyrirtækinu árið 1963.Framkvæmdastjóri Véla & Verkfæra er Sveinn H. Björnsson, dóttursonur Guðmundar.
Stjórn fyrirtækisins skipa:
Björn V. Sveinsson, stjórnarformaður og barnabarnabarn Guðmundar, Elín M. Sigurðardóttir og Jón Guðni Ómarsson (einnig barnabarnabarn Guðmundar).